Sunday, November 12, 2006

Dans....

Við hjónin vorum á balli í gærkvöldi, ekki tangóballi, heldur bráðfjörugu vetrarballi hjá dansklúbbnum Laufinu. Það eina sem vantaði á fjölbreytnina var argentínskur tangó, en það var þess meira af gömlu dönsunum, tjútti o.s.frv. Hljómsveitin TÍGLAR spilaði af mikilli list og mér sýndist að forstjóri eins stórfyrirtækis ætti tvífara í hljómsveitinni, en það reyndist ekki vera rétt! En við semsagt skemmtum okkur vel og hinir ýmsu dansar rifjuðust upp að einhverju leyti. Við fórum að sofa klukkan að ganga þrjú, en vorum vakin af værum blundi klukkan hálf sjö í morgun af sjálfvirkri blaðberahringingu Morgunblaðsins þ.e. víst erfitt að losna við þessa hringingu þótt blaðburðarferli (sonarins) sé lokið.
Halla... þú hafðir rétt fyrir þér, og í dag dansaði Kristinn um stofuna og stigann, með nýju ryksuguna í fanginu.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Haha hefði viljað sjá hann bróður minn dansa við ryksugu, lét hún að stjórn? Annars getur hann dansað við mig og það er eiginlega ómögulegt svo líklega getur hann dansað við ryksuguna;-) Knús og kyss frá öllum á Grenivöllum 24

9:03 PM  
Anonymous Anonymous said...

hehehe það hefði verið tilvalið Kodak myndatilefni.

12:49 PM  

Post a Comment

<< Home