Monday, November 06, 2006

TANGO PLUS

Ég þekki snjalla konu sem fær afleysingadömu til að mæta fyrir sig, ef hún kemst ekki í tangótíma með manninum sínum. Ég mæti hins vegar í tangótímana, en er ekki alltaf tilbúin að dansa hér heima á stofugólfinu þegar Kristni dettur það í hug. Í morgun sá ég athyglisverða auglýsingu frá virtu fyrirtæki hér í bæ og fór af stað og keypti rauða glansandi vél: TANGO PLUS .... og nú bíð spennt eftir að eiginmaðurinn svífi með hana um gólfin.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Haha er það ryksuga? Velkomin aftur í bloggheima, gott að fá ykkur aftur;-) Bið að heilsa í bæinn og knús til ykkar allra frá okkur á Grenivöllunum.

6:37 AM  

Post a Comment

<< Home