gullfiskur
Já Stella er, eða réttara sagt VAR gullfiskur, á sýningu dansks listamanns í Austurríki. Var ásamt 9 öðrum gullfiskum í því áhættusama hlutverki að vera í blandara, og einn sýningargesturinn setti í gang blandarann sem Stella var í. Þar með var hún send í eilífðina. Svipað atvik gerðist fyrst fyrir einhverjum árum þegar sami listamaður var með hliðstæða sýningu á Jótlandi. Glögga vinkonan hennar Kristínar mundi þetta (sjá komment á síðasta bloggi). Blandarinn okkar eða réttara sagt töfrasprotinn sem við keyptum hefur hins vegar legið ónotaður þar til í dag. Nú er hann notaður til að búa til mjólkurhristing fyrir dótturina sem var að koma úr kjálkaskurðaðgerð nr. tvö. Og hann nýtist vel og engin slys á fólki, fuglum né fiskum á þessu heimili þessa dagana.
3 Comments:
Æi...greyið gullfiskurinn.
En takk fyrir alla sjeikana, þetta er frábær blandari.
Elskurnar mínar, fariði nú að blogga úr sólinni í Köben, svo maður viti hvað er í gangi. Ef þið hafið möguleika á, væri ósköp gaman að fá ykkur í ferminguna hans Brynjólfs á Hvítasunnudag 4. júní og að sjálfsögðu Jón Kristján líka. Allt gott að frétta héðan, ansi kalt reyndar og töluvert mikið að gera en þó bjart yfir okkur hér.
Jæja er ekki kominn tími á að blogga?
Post a Comment
<< Home