Tuesday, January 02, 2007

Gleðilegt ár





















Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna. Bestu þakkir fyrir jólakort, myndir og kveðjur sem við höfum fengið.

Hér voru u.þ.b. 30 manns í spilaboði á jóladagskvöld, áður en Sigríður Ósk fór heim til sín, og það var heilmikið fjör. Annars höfum við hjónakornin leyft okkur að vera löt og gera sem minnst, eftir að mestu jólaönnum lauk, og fundist það ljómandi gott. Freyja er farin til Brighton, fór á nýjársdag, og átti að byrja að vinna á dýralæknastofunni þar strax í morgun.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gleðilegt ár sömuleiðis elsku Kristinn og Stella og takk fyrir gömlu árin. Skemnmtilegar letikastmyndir af ykkur! knús og kram frá okkur hér!

6:26 AM  

Post a Comment

<< Home