Thursday, July 03, 2008

Almenningssamgöngur!!!!

Ég hef reynt ad haga mér eins og innfaeddur og ferdast um med straetó, Metró og gangandi, en kannski aetti ég ad ferdast med leigubílum! Straetóaevintýrid thekkid thid sem lesid thessa pistla og gaer lenti ég í Metróaevintýri. Ég var á leid heim og ákvad ad taka Metró. Naesta stöd var stödin undir Katalóníutorgi. Thangad hafdi ég ekki komid ádur en ég skellti mér nidur í jördina og sá thá ad stödin er risastór og ad ég hafdi farid nidur um vitlausan nidurgang (hljómar ekki vel á íslensku - nidurgangur - en man ekki betra ord). Ég vissi reyndar ekki á thessari stundu ad "nidurgangurinn" var ekki réttur. Ég gerdi thad sem ég var vanur gera, gekk einu hlidanna, stakk kortinu mínu í rauf og thá var mér hleypt inn um hlidid. Thegar ég var um thad bil ad stíga um bord í lestin gerdi ég mér grein fyrir ad hún var dálítid ólík theim lestum sem ég fór med daglega. Ég kannadi málid og thá kom í ljós ad thessi lest var ad fara til MADRÍDAR!!! Ég hafdi svo sem ekkert á móti thví ad skreppa thangad en ég efadist um metrómidinn minn yrdi tekinn gildur í lestinn, svo ég sneri frá og reyndi ad komast aftur út til ad fara á Metróstöd en ÚPS!!!, ég komst ekki út. Metrómidinn hleypti mér inn en ekki út. Ég bar mig upp vid vörd sem sagdi mér bara ad stinga midanum mínum í raufina og var slétt sama um ad thad hafdi engin áhrif. Nú voru gód rád dýr. Átti ég ad klifra yfir vegginn, hann virtust ekki svo hár? Nei, thad mun vekja of mikla athygli. Átti ég ad hrópa SPRENGJA!!! og laumast svo yfir vegginn í aesingnum? Nei, ekki snidugt, ekki nú á tímum. Ad lokum ákvad ég ad finna mér félaga á medal theirra sem vaeru á leid út og laumast út med honum, á hans mida. Thad tókst! Nú bíd ég eftir thridja aevintýrinu í Metró eda straetó.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Mikið er ég fegin að þú hrópaðir ekki "sprengja" ég hef takmarkaðan áhuga á að heimsækja þig í fangelsi þegar ég kem!
SB

4:53 PM  
Blogger Freyja said...

hahaha.....þetta eru nú meiri ævintýrin! Halltu endilega áfram að nota almennings samgöngur svo við fáum að heyra fleiri svona hrakfallasögur.

7:07 AM  
Blogger Jón Kristján said...

Já, algjörlega. Ekki fara í leigubílana, þar gerist aldrei neitt spennandi.

Þetta hljómar eins og eitthvað sem ég hefði gert. Nema að ég hefði endað í fangelsi fyrir að hrópa "sprengja"..

9:17 AM  

Post a Comment

<< Home